Ó mig auma

CryingNú er vont í efni. Mín komin með bólgur í vöðvafestingar í báðum hnjám. Læknir vísar í sjúkraþjálfun, bólgueyðandi krem og hitahlífar á hnéin. Reyndur hlaupari sagði mér að éta bólgueyðandi lyf og hvíla í 3 - 4 daga. Og ég er bara rétt byrjuð að hlaupa! Kannski er þetta bara notkunarleysi og verður allt í lagi eftir nokkra daga. EN ég er ekki hætt. Verst er að geta lítið dansað á ballinu í kvöldShocking Það verður þá bara meira drukkið og kjaftað.

Í dag fórum við í Önundarfjörðinn þar sem hestarnir eru og skelltum okkur á bak. Sigga og Gummi fóru með okkur og var Gummi að fara bak í frysta sinn síðan hann var 6 ára og Sigga hafði aldrei stigið á bak. En þau stóðu sig bara frábærlega, eins og þau hafi aldrei gert annað. Ég fór einn hring á honum Skugga okkar og hann er nú bara hinn ljúfasti, var reyndar eitthvað fótsár og ég fann svo til með honum að hann fékk aðallega að vera í grasinu. Gylfi er alveg forfallinn og vill fara að fjölga í hópnum. Var að skoða sölusíður fyrir hesta fram á nótt!

Læt þetta duga í bili.

KV Sóley


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Tíhíhí... áður en þú veist af verðið þið komin á kaf í ræktun og allt maður!

Slæmt með hnén, líklegast best að hlusta á þau. Maður fær víst ekki ný svo auðveldlega.

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 19.7.2008 kl. 21:38

2 Smámynd: Ísbjörn

Neh ætli það Þórdís að við förum svo langt í hestunum.

En með hnéin, það er rétt hjá þér, ekki get ég pantað ný á e-bay eins og fólk verslar nú þar. Enda er ég bara að hvíla eins og reyndi hlauparinn sagði. Fór smá í golf í dag, bara 3 holur á æfingavellinum. Ætla að reyna smá hlaup á morgun.

Ísbjörn, 20.7.2008 kl. 20:20

3 identicon

Takk fyrir frábæra helgi Sóley mín.  Laugardagurinn var góður og langur   Á hestbaki í sól og sælu í sveitinni og svo kjaftað og tjúttað fram undir morgun.  Vona að hnén verði fljót að jafna sig á þessu, það er alltaf hægt að semja um heimahjúkrun

Sigga Ragna (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband