Og ég hleyp og hleyp

Hef farið annan hvern dag að hlaupa, bæði þessa viku og síðustu og gengið fínt. Finn ekkert til í hnjánum og hef bætt við tímann, þ.e. þær mínútur sem ég get hlaupið án þess að springa. Er komin upp í tvær og hálfa mínútu sem er bara fínt úr einni mín þegar ég byrjaði.

Fór að sjá Mamma mía á sunnudag og skemmti mér konunglega. Mikið svakalega langaði mig að syngja með. Kann að vísu ekki alveg öll lögin en megnið af viðlögunum. Vonandi tekst að redda sing a long sýningu hér. Ég veit að tvær góðar konur eru á fullu að smala fólki til að vera forsöngvarar. Ef af verður mæti ég sko galvösk og syng með af minni alkunnu, sérlega fögru rödd Whistling (hóst).

Heyrumst síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Koma svo Sóley...þetta er glæsilegt hjá þér

Jóna Lind (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 15:09

2 Smámynd: Helga Aðalsteinsdóttir

Frábært hjá þér... haltu áfram ... mundu að góðir hlutir gerast hægt og rólega. 

Helga Aðalsteinsdóttir, 25.8.2008 kl. 21:08

3 Smámynd: Ísbjörn

Takk fyrir kveðjurnar stelpur. Já, Helga það er alveg satt, góðir hlutir koma ekki í einum hvelli, þá myndi maður ekki taka eftir þeim.

Ég held ótrauð áfram.

Ísbjörn, 26.8.2008 kl. 09:46

4 identicon

Sæl frænka.

Takk fyrir síðast. Lofaði að senda link á myndasíðuna okkar;)

Kveðja Svanborg

Svanborg (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 07:18

5 Smámynd: Hjördís Þráinsdóttir

Mér skilst að það verði sing-along sýning á föstudagskvöldið kl. 20. Þú getur þá mætt og þanið þig!

Hjördís Þráinsdóttir, 27.8.2008 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband