Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Suðurferð framundan!

Við erum á leið til Reykjavíkur í næstu viku. Enn eru það læknaheimsóknir sem draga okkur í borgina og það nokkrar í þetta sinn. Veturliði og Margrét eru bæði að fara til augnlæknanna sinna og ég er að fara til ofnæmislæknis. Svo er Margrét að fara í heilalínurit og að hitta Ólaf, taugalækninn sinn, þannig að það verður nóg að gera hjá okkur.

Ég er byrjuð í leikfimi hjá Guðríði og Ranný. Frábærir tímar sem eru x2 í viku og finnst mér ferlega gaman og það er svo sannarlega tekið á því. Ég hafði þá ímynd af þessum tímum að þetta væri svona þokkalega róleg ,,konu" leikfimi því þarna eru konur á öllum aldri, frá þrítugu og upp og yfir sjötugt. En þvílíkar kraftakonur sem þarna eru, sumar búnar að vera í þrjátíu ár og eru ekkert á leiðinni að hætta. Ætli ég verði ekki bara þarna næstu þrjátíu árin eða svo, en það er svo sem ekki víst að Guðríður og Ranný haldi áfram önnur þrjátíu ár en hvað veit maður?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband